0708. tbl. 110. árg. 2024

Umræða og fréttir

Alls 81 bætist í íslensku læknastéttina

„Innilega til hamingju með þennan risastóra áfanga í lífinu – áfanga sem verður alltaf einn af þeim allra stærstu sem þið fáið að upplifa,“ sagði Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands, í árlegri veislu til heiðurs þeim sem nú útskrifast sem læknar. Þar rituðu þau undir læknaeiðinn.

Alls útskrifast 81 úr læknisfræði um þessar mundir, 49 frá Íslandi, fjórir frá Ungverjalandi, nítján frá Slóvakíu, einn frá Póllandi, sjö frá Danmörku og einn frá Litháen.

Steinunn sagði útskriftarhópinn nú hluta af læknastéttinni í heild.

„Læknar eiga að láta sig samfélagsmál varða, berjast fyrir góðum og mikilvægum málefnum sem varða heilsu þjóðarinnar og taka að sér hlutverk við stjórnun og stefnumótun,“ sagði Steinunn og að læknar ættu að setja niður fótinn og berja í borðið þegar eitthvað er óviðunandi í umhverfinu.

„En það er líka mikilvægt að vera jákvæður og lyfta því sem vel er gert.“ Steinunn sagði lækna gríðarlega verðmæta starfskrafta og gaf þessum nýju læknum gott ráð. „Forðist að detta í meðvirkni með óásættanlegri stjórnun og starfsfyrirkomulagi – nýtið frekar samtakamátt félagsins til að hafa áhrif til hins betra.“

Stundin í veislusal Læknafélagsins þennan fimmtudag var hátíðleg. Alma Möller landlæknir gaf góð ráð og Þórarinn Guðjónsson, forseti læknadeildar Háskóla Íslands, hvatti þessa nýju lækna áfram. Dagur B. Eggertsson flutti ræðu fyrir hönd 25 ára útskriftarlækna. „Ég hef áttað mig á því að læknanámið er í grundvallaratriðum nám um góða ákvarðanatöku,“ sagði hann.

Dagur segir að læknar séu fyrst og fremst undirbúnir fyrir að setja mál í ferli, taka rétta ákvörðun og ákveða hvaða upplýsingar þurfi að liggja fyrir þannig að hægt sé að taka rétta ákvörðun. „Og samviskueiður lækna, Hippókratesar-eiðurinn, sem þið eruð öll að fara að skrifa undir hér, kjarnast í þessu.“ Læknar búi að fjársjóði sem þau byggi nú á.

„Til hamingju með daginn, alveg innilega,“ sagði Dagur. Læknablaðið tekur undir það.

U03-fig-1

Efst frá vinstri; Hörður Tryggvi Bragason, Leon Arnar Heitmann, Karl Jóhann Bjarnason, Kristján Veigar Kristjánsson, Jökull Sigurðarson, Freyþór Össurarson,
Héðinn Össur Böðvarsson, Fannar Bollason, Haraldur Jóhann Hannesson, Alexander Jóhannsson, Ólafur Jens Pétursson, Gizur Sigfússon, Bjarni H. Þrastarson,
Dagur Darri Sveinsson, Dagur Friðrik Kristjánsson, Eggert Halldórsson, Emil Ólason og Þorsteinn Vilhjálmsson.

Miðja frá vinstri; Þóra Óskarsdóttir, Kolbrún Sandra Hrafnsdóttir, Klara Briem, Edda Þórunn Þórarinsdóttir, Dagný Birta Arnardóttir, Hildur Ólafsdóttir, Elsa Jónsdóttir,
Jóhanna Guðrún Bergþórsdóttir, Hugrún Lilja Ragnarsdóttir, Hafsteinn Örn Guðjónsson, Þórbergur Atli Þórsson, Aðalsteinn Dalmann Gylfason, Þóra Silja Hallsdóttir,
Valdís Halla Friðjónsdóttir, Heiðrún Ósk Reynisdóttir, María Gyða Pétursdóttir, Ragna Kristín Guðbrandsdóttir, Nanna Sveinsdóttir, Sara Margrét Daðadóttir,
Þórhallur Elí Gunnarsson, Atli Magnús Gíslason og Unnur Lára Hjálmarsdóttir.

Sitjandi röð frá vinstri; Dagný Ásgeirsdóttir, Selma Rún Bjarnadóttir, Jónína Rún Ragnarsdóttir, Margrét Kristín Kristjánsdóttir, Kolfinna Gautadóttir, Vigdís Ólafsdóttir,
Anita Rut Kristjánsdóttir, Sigríður Margrét Þorbergsdóttir, Guðrún Ólafsdóttir, Sif Elíasdóttir, Ásdís Dröfn Guðmundsdóttir, Ásta Evlalía Hrafnkelsdóttir (standandi),
Tinna María Hafþórsdóttir, Ísold Norðfjörð og Silja Kristín Guðmundsdóttir.

Krjúpandi frá vinstri; Magnús Torfi Rúnarsson, Katrín Kristinsdóttir, Ingunn Haraldsdóttir, Brynhildur K. Ásgeirsdóttir, Ólöf Hafþórsdóttir og Daníel Alexander Pálsson. Mynd/gag

U03-fig-2

Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélagsins, ávarpar nýjustu
lækna landsmanna.

U03-fig-3

Dagur B. Eggertsson læknir og fyrrum borgarstjóri og Alma Möller landlæknir.

U03-fig-6

Ungu læknarnir nýútskrifuðu sem búa að fjársjóði, eins og fulltrúi 25 ára útskrifaðra sagði í ræðu sinni.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica