02. tbl. 99. árg. 2013

Umræða og fréttir

Frá öldungadeild LÍ. Íbería. - Ég og Vilmundur landlæknir. Hörður Þorleifsson

Íberíuför

Í Öldungadeild LÍ hefur verið hefð fyrir því að fara í tvær ferðir, innanlands og utan á ári hverju. Dagana 26. maí til 9. júní 2012 ferðaðist 39 manna hópur á vegum deildarinnar um norðurhluta Íberíuskagans. Fararstjóri var Kristinn R. Ólafsson. Ferðin hófst í Oporto í Portúgal en lauk í Barselóna. Fjöldi fallegra og sögufrægra staða var skoðaður. Almenn ánægja var með ferðina. Myndina tók Hjörleifur Guttormsson 1. júní en þá var hópurinn staddur fyrir utan Guggenheimsafnið í borginni Bilbao. Fánaberinn er fararstjórinn.


Ég og Vilmundur landlæknir

 

Hörður Þorleifsson

 

Að loknu prófi úr læknadeild í júní 1954 fór ég á fund Vilmundar Jónssonar landlæknis til að forvitnast um starf í héraði, en hálfs árs vinnuskylda í héraði fylgdi kandídatsári. Vilmundur var ræðinn og þægilegur í viðmóti. Hann sagði mér að héraðslæknirinn á Hvammstanga væri að fara í námsfrí í hálft ár og gæti ég farið þangað ef okkur Brynjúlfi Dagssyni semdi. En að þeim tíma loknum ætti ég að fara norður á Strandir í Árnes því að þar vantaði lækni. Ég, með þrjú börn, eins árs tvíburadrengi og þriggja ára dreng, taldi öll tormerki á því. Þá sagði Vilmundur: „Þá tölum við ekki um þetta frekar.“ Síðan fór hann að tala um daginn og veginn og læknanámið. Eftir hálftíma dvöl kvaddi hann mig með virktum. Ég hringdi til Brynjúlfs Dagssonar á Hvammstanga og náðum við samkomulagi um að ég starfaði fyrir hann í hálft ár. Ég fór til Vilmundar og sagði honum tíðindin. Hans fyrstu viðbrögð voru: „Svo farið þér í Árnes.“ Ég sagði honum að ég hefði ekki gefið ádrátt um það. Þá sagði Vilmundur orðrétt: „Þér eruð dirty character, Hörður.“ Þóttist ég sjá að hann hefði notið þess að segja þessa setningu. Síðan ræddum við saman um ýmis dægurmál í hér um bil 30 mínútur þar til hann sleit samtalinu og kvaddi mig.

Í febrúarbyrjun 1956 fékk ég veitingu fyrir Hvammstangahéraði. Ég var samviskan uppmáluð og sendi landlæknisembættinu mánaðarlega skýrslu um sóttarfar og sjúkdóma. Ég hafði eyðublaðið í töskunni og strikaði við, á réttum stað, hvert tilfelli sem ég sá. Nú liðu fáir mánuðir. Þá kom bréf frá Vilmundi landlækni: „Herra héraðslæknir, undanfarna mánuði hafið þér sent embættinu mánaðarlega skýrslu um sóttarfar og sjúkdóma áritað eins og hafnarverkamenn rita á tunnubotna við út- og uppskipun vara. Vinsamlega sendið embættinu eftirleiðis skýrslurnar áritaðar með serkneskum tölustöfum.“ Fannst mér ég sjá fyrir mér glettnissvip hans er hann reit bréfið.

Síðar heimsótti Vilmundur mig á Hvammstanga ásamt Grétari Fells, ritara sínum, og lá vel á þeim. Landlæknisembættið var nú ekki fjölmennara þá.


Af sænskum „selum“

Af „Öldungadeildum“ á Norðurlöndum sýnist mér hvað mest líf í Sveriges Äldre Läkare eða SÄL innan vébanda Sveriges Läkarförbund. Meðlimir eru vel á 3. þúsund og er félaginu skipt í svæðisfélög. Haldinn er vor- og haustfundur í aðalfélaginu og er annar þeirra aðalfundur. Svæðisfélögin halda svo fáeina fundi á ári, oftast með fræðandi fyrirlestrum.
„Selirnir” eins og þeir kalla sig halda úti myndarlegu blaði sem kemur út fjórum sinnum á ári. Í því er lögð áhersla á stöðu eldri lækna innan samfélagsins og læknastéttarinnar. Loks standa selirnir fyrir ferðum víða um heim, árið 2013 til fjögurra landa.

Heimasíða SÄL er: www.slf.se/sal


Öldungasíðan

Þessi síða Öldungadeildar LÍ er hin tuttugasta í Læknablaðinu. Sú fyrsta birtist í septemberblaðinu 2010. Í byrjun var síðan í hverju blaði en 2012 í öðru hverju blaði og mun svo verða um sinn. Undantekningarlítið hefur okkur verið ætluð ein blaðsíða.

Á fyrstu öldungasíðunni var þess getið að henni væri ætlað að flytja fréttir og fróðleik. Viðruð var sú von að efnið höfðaði til fleiri en aldraðra lækna. Hefur mér heyrst að það hafi að nokkru ræst. Hvatt var til að félagar legðu henni til efni. Heimtur hafa reynst dræmari en vænst var. Auk mín hafa sjö félagar hlýtt kallinu, þar af einn fjórum sinnum. Efni síðunnar hefur verið allfjölbreytt en misgott eins og gengur. Birst hafa minningabrot, ferðasögur, sögulegir pistlar, efni úr gömlum Læknablöðum, ferðasögur og ljóð.

Öldungasíðunni verður því aðeins langra lífdaga auðið að á henni birtist áhugavert efni. Það á ekki að vera verk eins manns að tína það saman. Ég ítreka ákall mitt til félaga minna að leggja síðunni til efni í bundnu sem óbundnu máli, frumsamið sem endursagt, gaman sem alvöru.

Ég veit að þið lumið á því.

 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica