06. tbl. 97. árg. 2011

Umræða og fréttir

Úr penna stjórnarmanna LÍ. Með smokkinn á heilanum! Valgerður Rúnarsdóttir

u01-fig1

„Hvað, ertu með smokkinn á heilanum?!“ Svo hljóðaði spurning sem beint var til mín á dögunum þegar ég hélt fyrirlestur úti í bæ. Ég áttaði mig á því að sú var raunin. Ég vil taka það fram strax, að ég veit vel að ÞAR á smokkurinn alls ekki að vera, en grínlaust þá er hann mér hugleikinn þessi misserin og ég veit að svo er einnig með marga aðra.

Í almennri kennslu sjúklinga á Vogi eru þeir meðal annars fræddir um kynsjúkdóma og smitleiðir á blóðbornum sýkingum. Sprautufíklar á Íslandi hafa smitast af lifrarbólgu C frá upphafi, og í auknum mæli eftir því sem þeir hafa sprautað sig lengur, þrátt fyrir að hafa gott aðgengi að hreinum sprautum og nálum. Við getum verið mjög þakklát fyrir góða afgreiðslu lyfjaverslana landsins, sem hafa gegnum tíðina afgreitt þessi áhöld til fíkla, gegn vægu gjaldi. Þessi þjónusta og skilningur sem fíklar mæta oftast nær, eftir því sem þeir segja mér, er ómetanlegur. Lyfjaverslanir eru um allt land, í flestum hverfum höfuðborgarsvæðisins og opnunartímar sums staðar mjög langir. Þrátt fyrir það deila sprautufíklar áhöldum og smitast af þessum veirum hver af öðrum. Ástæðan er ekki slæmt aðgengi að nálum. Ástæðan er fyrst og fremst það hættulega hugarástand sem vímuefnin og fíknin valda. Fíklar taka áhættur, gera órökrétta hluti, verða hvatvísir og kærulausir og stendur á sama, þegar þeir eru undir áhrifum. Þá getur það gerst, þrátt fyrir betri vitund, að áhöldum er deilt. Jafnvel þótt lyfjaverslun sé opin í nágrenninu. Þeir taka áhættuna. Þessu verður ekki breytt með því að skipta út nálum á takmörkuðu svæði og tíma (nema hugsanlega fyrir lítinn hluta sprautufíkla sem búa þar í grennd og stendur á sama þótt þeir sjáist leita í aðstöðu sem er sérstaklega fyrir þá). Ef auka á verulega aðgengi að nálum og sprautum fyrir sprautufíkla almennt á Íslandi, sé ég ekki annað en það þurfi mann á stöðuga vakt, 24/7, sem veitir heimsendingaþjónustu þangað sem þörfin er. Þar til þessi þjónusta kemst til framkvæmda, sem yrði áreiðanlega sú besta í heimi, legg ég til að við stöndum enn frekar vörð um gott aðgengi í lyfjaverslunum landsins og sinnum því starfsfólki með fræðslu um mikilvægi þess að afgreiða þessar vörur greiðlega og ódýrt eða jafnvel ókeypis. Þannig geta þeir sem sprauta sig í æð að minnsta kosti varið sig gegn alvarlegum sýkingum, þar til þeir vonandi ná sér af fíknsjúkdómum og hætta að sprauta.

Í dag er HIV-veiran komin í hóp þeirra sem sprauta vímuefnum í æð og smitast milli sprautufíkla. Sú var ekki raunin hér á Íslandi áður og menn undruðust mjög en óttuðust alltaf. Þessi breyting varð fyrir tveimur til þremur árum og sorglega mikil aukning smits í kjölfarið. Þar á ekki síst þátt sú staðreynd að við erum enn í faraldri örvandi vímuefna, þar sem amfetamín er aðalvímugjafinn og metýlfenídat á þar stóran þátt jafnframt. Á árinu 2010 var 981 einstaklingur lagður inn á Vog sem hafði notað amfetamín til að fara í vímu (þar af 485 metýlfenídat), 546 af þeim reyndust fíknir í amfetamín og 248 höfðu sprautað í æð, þar af 224 metýlfenídat. Vonandi skila tilvonandi aðgerðir landlæknis árangri við að minnka það metýlfenídat í umferð sem hafnar í ólöglegri sölu sem fíkniefni.

Sprautufíklar stunda ekki bara kynlíf með sprautufíklum. Fæst af því unga fólki sem hefur sprautað sig ber það með sér. Höldum áfram vöku okkar um mikilvægi þess að sprautufíklar fái aðgang að hreinum áhöldum og mikilvægi þess að meðferð við fíknsjúkdómi sé góð. En munum eftir því að HIV smitast oftast með kynlífi. Nú fjölgar HIV-smitum meðal sprautufíkla, en hugum að smitvörnum fyrir þá sem eru útsettir. Ungt fólk og aðrir sem ekki eru í föstu sambandi. Fyrir þá er smokkurinn besta vörnin, fyrir utan kynlífsbindindi eða kynlíf eingöngu með sjálfum sér, sem er kannski langsótt markmið.

Er smokkurinn lítið notaður, ekki í tísku, of dýr? Það er alvarlegt ef svo er. Kynsjúkdómar eru ekki fágætir hérlendis, sem segir eitthvað um stöðuna. Þrír smokkar í pakka, kosta 1000-3000 kr.! Af hverju ekki 100-300 kr.?? Hvað gæti það sparað síðar?

Ráðumst enn og aftur í að auka þessa ódýru fyrsta stigs forvörn. Gott aðgengi að smokkum er nauðsynlegt, sem þýðir að þeir eiga að fást á sem flestum stöðum, mjög ódýrir og helst ókeypis þar sem við á. Stærra mál og flóknara er að gera smokkinn sjálfsagðari og auka notkun hans, en sinnum því samt. Ástráður læknanema hefur lagt sitt af mörkum og gerir enn. Notum öll tækifæri sem við læknar höfum til að ræða um smokkinn. Hvetjum til umræðu um hann. HIV mun í flestum tilvikum breiðast út með kynlífi meðal gagnkynhneigðra, eins og annars staðar. Þótt sprautusmitið sé greiðara, er það svo miklum mun sjaldgæfara en kynlíf, sem betur fer. Það er ólíklegt að þessi nýju smit í hópi sprautufíkla einangrist þar. Verum á varðbergi.

 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica