Íðorðapistlar 1-130
124-Meta-analysis
Miklar kröfur eru gerðar til fræðilegra staðreynda á sviði læknisfræðinnar, meðal annars þær að hvert þekkingaratriði sé þrautkannað og margstaðfest áður en það fær vist í hinum "viðurkennda" þekkingarforða. Fjöldi kannana og rannsókna liggur því á bak við flestar læknisfræðilegar staðreyndir, en slíkar athuganir eru þó ekki endilega þannig gerðar að auðvelt sé að ná fram sameiginlegri niðurstöðu. Þeirri aðferð er þá oft beitt að nota sérstakar tölfræðilegar aðferðir til að gera samantekt á niðurstöðunum. Slík greining er nefnd meta-analysis. Upplýsingar um þetta fyrirbæri er ekki að finna í Íðorðasafni lækna, en læknisfræðiorðabók Stedmans lýsir svo: Sá ferill að nota tölfræðilegar aðferðir til að sameina niðurstöður úr mismunandi athugunum; markvisst, skipulegt og formgert mat á viðfangsefni, framkvæmt með því að nota upplýsingar úr mörgum mismunandi könnunum á viðfangsefninu.
Gerð var leit í greinasafni Medline og fannst fljótt fjöldi greina (sjá kassa) sem tengdust fyrirbærinu meta-analysis (metaanalysis). Skilgreining leitarorðsins er þessi: Magnbundin aðferð til að sameina niðurstöður óháðra kannana (sem oft eru fundnar í útgefnu greinasafni) og byggja upp samantektir og niðurstöður sem nota má til að meta virkni meðferðar, skipuleggja nýjar kannanir ---. Augljóst er að gerðar eru miklar kröfur til þeirra aðferða sem beita þarf til að gefa megi fræðilegri samantekt þetta virðulega heiti, meta-analysis. Haldnir hafa verið markvissir vinnufundir og settir saman starfshópar sérfræðinga til að lýsa aðferðafræðinni og útlista skilmerki hennar. Tölfræðin er í lykilhlutverki og nálgunin á að vera skipuleg og gagnrýnin, en fyrirfram hlutlaus og strangvísindaleg.
Greining
Heitið meta-analysis er komið úr grísku. Fyrsti orðliðurinn meta- er útskýrður þannig í Íðorðasafni lækna: Merkir: a) aftan við, handan við, fjarlægur, b) á milli, á meðal, c) breyting, ummyndun, d) eftir, eftir á, e) síðari þáttur í þróun. Annar orðliðurinn er ana- sem merkir: upp, sundur eða í áttina að, en þriðji orðliðurinn lysis táknar niðurbrot, sundrun, rof eða upplausn. Um analysis var fjallað í 59. pistli (Lbl 1994;80:488) og tilgreint að orðið táknar greining, sundurliðun, efnagreining, sálgreining. Bent var á að analysis væri notað í mörgum mismunandi samsetningum, en að notkuninni væri þannig háttað að sérstök áhersla væri lögð á sundurgreiningu þess sem rannsakað er í hverju tilviki. Tilefni umfjöllunarinnar í 59. pistli voru heitin quantitative analysis, sem undirritaður lagði til að yrði nefnd magngreining á íslensku, og qualitative analysis, sem á sama hátt yrði nefnd eðlisgreining.
Safngreining
Undirritaður leitaði ráða hjá nokkrum starfsbræðrum, en enginn þeirra hafði fundið lausn sem hann var ánægður með. Vilhjálmur Rafnsson, prófessor, sagðist stundum nota íslenska orðið stórrannsókn, en sagðist þó ekki sjá að það heiti lýsti nægilega vel því sem um er að ræða. Í samtali okkar Vilhjálms kom upp sú hugmynd að safngreining gæti verið boðlegt íslenskt heiti á þessu fyrirbæri. Orðskýringin er þannig að meta-analysis sé tölfræðileg greining á safni margra rannsókna á sama fyrirbæri. Þetta er hér með lagt fram sem tillaga til gagnrýni og umræðu.
Geðklofalyf
Ólafur Árni Sveinsson, læknanemi, sendi fyrirspurn í tölvupósti og sagðist vera að fást við verkefni á sviði geðlækninga. Í umræðunni þarf hann að aðgreina tvær tegundir eða tvo hópa geðklofalyfja, annars vegar conventional og hins vegar atypical. Undirritaður fékk að vísu ekki aðrar upplýsingar, en taldi sig þó geta leyst málið á einfaldan hátt, önnur tegundin yrði hefðbundin en hin óhefðbundin. Þann fyrirvara má einnig gera að samhengið gæti verið þannig, að réttara væri að tala um venjuleg og óvenjuleg geðklofalyf. Hér gæti verið um blæbrigðamun að ræða sem máli skiptir.
Rétt er að geta þess að þessi aðgreining geðklofalyfjanna á ekki samsvörun í hinni þekktu líffæra-, meðferðar- og efnafræðiflokkun lyfja (ATC-flokkuninni). Íðorðasafn lækna tilgreinir lýsingarorðið atypical og gefur þýðingarnar, afbrigðilegur, frábrigðilegur, en hvorug sýnist eiga við hér. Þó að nánari upplýsingar um þau lyf sem um ræðir liggi ekki fyrir, má velta upp þeirri spurningu hvort ofangreind aðgreining sé ekki tímabundið fyrirbæri. Þau lyf, sem nú eru hefðbundin eða venjuleg, gætu orðið úrelt og önnur óhefðbundin eða óvenjuleg tekið þeirra sæti.
Afsökunarbeiðni
Í síðasta pistli var leiðinleg villa. Rætt var um íslensku heitin fylgitími og eftirfylgnitími, sem stungið var upp á til að þýða ensku samsetninguna follow-up time. Beiðni um umfjöllun var sögð hafa komið frá Laufeyju Steingrímsdóttur, næringarfræðingi, en þar var rangt með farið því að beiðnin kom frá Laufeyju Tryggvadóttur, faraldsfræðingi hjá Krabbameinsfélagi Íslands. Þær eru báðar beðnar afsökunar á mistökunum.
Í umræddum pistli var óskað eftir viðbrögðum lesenda við tillögum undirritaðs: fylgiumönnun (follow-up care), fylgisamband (follow-up contact), fylgiskoðun (follow-up examination), fylgirannsókn (follow-up study) fylgiráðstöfun (follow-up measure) og fylgimeðferð (follow-up treatment). Enn er beðið eftir viðbrögðum.
Ítarefni:
Buyse M o.fl. Meta-analysis: methods, strengths, and weaknesses. Oncology 2000;14:437-43.
Koch A o.fl. Meta-analysis as a tool for evaluation of evidence. Medizinische Klinik 2000;95:109-16.
Shekelle PG o.fl. Principles of metaanalysis. Journal of Rheumatology 2000;27:251-2.
Stroup DF o.fl. Meta-analysis of observational studies in epidemiology: a proposal for reporting. JAMA 2000;283:2008-12.
Lbl 2000; 86: 533
Gerð var leit í greinasafni Medline og fannst fljótt fjöldi greina (sjá kassa) sem tengdust fyrirbærinu meta-analysis (metaanalysis). Skilgreining leitarorðsins er þessi: Magnbundin aðferð til að sameina niðurstöður óháðra kannana (sem oft eru fundnar í útgefnu greinasafni) og byggja upp samantektir og niðurstöður sem nota má til að meta virkni meðferðar, skipuleggja nýjar kannanir ---. Augljóst er að gerðar eru miklar kröfur til þeirra aðferða sem beita þarf til að gefa megi fræðilegri samantekt þetta virðulega heiti, meta-analysis. Haldnir hafa verið markvissir vinnufundir og settir saman starfshópar sérfræðinga til að lýsa aðferðafræðinni og útlista skilmerki hennar. Tölfræðin er í lykilhlutverki og nálgunin á að vera skipuleg og gagnrýnin, en fyrirfram hlutlaus og strangvísindaleg.
Greining
Heitið meta-analysis er komið úr grísku. Fyrsti orðliðurinn meta- er útskýrður þannig í Íðorðasafni lækna: Merkir: a) aftan við, handan við, fjarlægur, b) á milli, á meðal, c) breyting, ummyndun, d) eftir, eftir á, e) síðari þáttur í þróun. Annar orðliðurinn er ana- sem merkir: upp, sundur eða í áttina að, en þriðji orðliðurinn lysis táknar niðurbrot, sundrun, rof eða upplausn. Um analysis var fjallað í 59. pistli (Lbl 1994;80:488) og tilgreint að orðið táknar greining, sundurliðun, efnagreining, sálgreining. Bent var á að analysis væri notað í mörgum mismunandi samsetningum, en að notkuninni væri þannig háttað að sérstök áhersla væri lögð á sundurgreiningu þess sem rannsakað er í hverju tilviki. Tilefni umfjöllunarinnar í 59. pistli voru heitin quantitative analysis, sem undirritaður lagði til að yrði nefnd magngreining á íslensku, og qualitative analysis, sem á sama hátt yrði nefnd eðlisgreining.Safngreining
Undirritaður leitaði ráða hjá nokkrum starfsbræðrum, en enginn þeirra hafði fundið lausn sem hann var ánægður með. Vilhjálmur Rafnsson, prófessor, sagðist stundum nota íslenska orðið stórrannsókn, en sagðist þó ekki sjá að það heiti lýsti nægilega vel því sem um er að ræða. Í samtali okkar Vilhjálms kom upp sú hugmynd að safngreining gæti verið boðlegt íslenskt heiti á þessu fyrirbæri. Orðskýringin er þannig að meta-analysis sé tölfræðileg greining á safni margra rannsókna á sama fyrirbæri. Þetta er hér með lagt fram sem tillaga til gagnrýni og umræðu.Geðklofalyf
Ólafur Árni Sveinsson, læknanemi, sendi fyrirspurn í tölvupósti og sagðist vera að fást við verkefni á sviði geðlækninga. Í umræðunni þarf hann að aðgreina tvær tegundir eða tvo hópa geðklofalyfja, annars vegar conventional og hins vegar atypical. Undirritaður fékk að vísu ekki aðrar upplýsingar, en taldi sig þó geta leyst málið á einfaldan hátt, önnur tegundin yrði hefðbundin en hin óhefðbundin. Þann fyrirvara má einnig gera að samhengið gæti verið þannig, að réttara væri að tala um venjuleg og óvenjuleg geðklofalyf. Hér gæti verið um blæbrigðamun að ræða sem máli skiptir. Rétt er að geta þess að þessi aðgreining geðklofalyfjanna á ekki samsvörun í hinni þekktu líffæra-, meðferðar- og efnafræðiflokkun lyfja (ATC-flokkuninni). Íðorðasafn lækna tilgreinir lýsingarorðið atypical og gefur þýðingarnar, afbrigðilegur, frábrigðilegur, en hvorug sýnist eiga við hér. Þó að nánari upplýsingar um þau lyf sem um ræðir liggi ekki fyrir, má velta upp þeirri spurningu hvort ofangreind aðgreining sé ekki tímabundið fyrirbæri. Þau lyf, sem nú eru hefðbundin eða venjuleg, gætu orðið úrelt og önnur óhefðbundin eða óvenjuleg tekið þeirra sæti.
Afsökunarbeiðni
Í síðasta pistli var leiðinleg villa. Rætt var um íslensku heitin fylgitími og eftirfylgnitími, sem stungið var upp á til að þýða ensku samsetninguna follow-up time. Beiðni um umfjöllun var sögð hafa komið frá Laufeyju Steingrímsdóttur, næringarfræðingi, en þar var rangt með farið því að beiðnin kom frá Laufeyju Tryggvadóttur, faraldsfræðingi hjá Krabbameinsfélagi Íslands. Þær eru báðar beðnar afsökunar á mistökunum.Í umræddum pistli var óskað eftir viðbrögðum lesenda við tillögum undirritaðs: fylgiumönnun (follow-up care), fylgisamband (follow-up contact), fylgiskoðun (follow-up examination), fylgirannsókn (follow-up study) fylgiráðstöfun (follow-up measure) og fylgimeðferð (follow-up treatment). Enn er beðið eftir viðbrögðum.
Ítarefni:
Buyse M o.fl. Meta-analysis: methods, strengths, and weaknesses. Oncology 2000;14:437-43.Koch A o.fl. Meta-analysis as a tool for evaluation of evidence. Medizinische Klinik 2000;95:109-16.
Shekelle PG o.fl. Principles of metaanalysis. Journal of Rheumatology 2000;27:251-2.
Stroup DF o.fl. Meta-analysis of observational studies in epidemiology: a proposal for reporting. JAMA 2000;283:2008-12.
Lbl 2000; 86: 533